Tryggjum gæði og öryggi stafrænna innviða með sérfræðiþekkingu og vönduðum vinnubrögðum.

Við sérhæfum okkur í ráðgjöf og þjónustu við tölvukerfi þar sem hver sekúnda skiptir máli.

Þjónusta

Photon sameinar sérfræðiþekkingu, vandað verklag og skýra upplýsingagjöf

Við styðjum fyrirtæki og stofnanir í hönnun, umbótum og rekstri á þeirra tölvukerfum með áherslu á öryggi, gæði og áreiðanleika.

Ráðgjöf

Hlutlaus og fagleg ráðgjöf með áherslu á gæði, gagnsæi og vandað verklag. Með ráðgjafaþjónustu okkar bjóðum við meðal annars upp á:

  • Stefnumótun tækniumhverfa
  • Þarfagreiningar
  • Aðstoð við val á lausnum og samstarfsaðilum
  • Stuðning við tæknilegar ákvarðanir
  • Hagræðingu og viðhald fjárhagslegra markmiða
  • Mótun verklags, ferla og teyma
  • Ráðgjöf og hönnun á tölvukerfum þar sem krafa er um hámarks uppitíma
Sérfræðiþjónusta

Djúp tæknileg þekking og reynsla sem nýtist þar sem kröfur um gæði, nákvæmni og rekstraröryggi eru miklar. Við sérhæfum okkur í:

  • Netkerfum fyrirtækja
  • Öryggislausnum og eldveggjum
  • Netkjörnum, internet samskiptum og samtengingum útibúa
  • Þráðlausum netkerfum
  • Linux og sérhæfðum hugbúnaði
  • Sjálfvirknivæðingu umhverfa
  • Samþættingu kerfa
  • Sýndar- og gagnaumhverfi
  • Afritun og endurheimtun gagna
Tækni og verkefnastjórn

Fyrir fyrirtæki sem þurfa áreiðanlegan aðila til að styðja við stöðuleika, breytingar, innleiðingar og góð samskipti. Meðal þess sem við bjóðum upp á:

  • Tæknilega leiðsögn fyrir rekstrar- og innleiðingarteymi
  • Stuðning við ákvarðanatöku og forgangsröðun
  • Brú milli tækni, reksturs, stjórnenda, notenda og ytri aðila
  • Skýrt skipulag, verkáætlanir og ábyrgð
  • Reglulega upplýsingagjöf um stöðu og gang mála
Úttektir

Við bjóðum upp á úttektir á umhverfum og rekstri tölvukerfa þar sem við greinum núverandi stöðu og komum með tillögur að úrbótum. Meðal úttekta sem boðið er upp á:

  • Öryggisúttektir
  • Heilsufarsstaða umhverfa
  • Veikleikagreiningar
  • Kostnaðargreiningu á fjarskiptum og upplýsingatækni
  • Rekstrarúttektir
  • Áhættugreiningu tölvukerfa
Um Okkur

Photon var stofnað til að aðstoða fyrirtæki við að ná hærra öryggis- og gæðastigi í sínum stafrænu innviðum

Við búum yfir mikill reynslu og þekkingu á tækni og brennum fyrir að byggja stöðug og örugg tölvukerfi

Stofnandi 2
Þorgeir Már Jónsson
Netsérfræðingur & stofnandi

Sérfræðingur í netkerfum með yfir 10 ára reynslu af ráðgjöf, hönnun og rekstri flókinna netkerfa.

Hefur leitt net- og innviðateymi, stýrt tæknilegum umbreytingum og innleiðingu öruggra lausna fyrir fjölbreytt rekstrarumhverfi.

Þekktur fyrir útsjónarsemi og brennandi áhuga á að takast við vandamál og leysa á farsælan máta.

Stofnandi 1
Tryggvi Farestveit
Stofnandi - Hefur störf 01.02.26

Reyndur upplýsingatæknisérfræðingur með yfir 25 ára reynslu í flóknum og krefjandi umhverfum.

Með djúpa tæknilega þekkingu í öryggi, linux og netkerfum. Vottaður CCIE (#69855) ásamt Nutanix, Nokia og Red Hat.

Þekktur fyrir að byggja teymi, þróa þjónustur og tengja saman viðskiptaþarfir og tækni.

Stofnandi 3
Agla Steinunn Bjarnþórudóttir
Stofnandi - Hefur störf 01.03.26

Reyndur sérfræðingur með yfir 10 ára reynslu af vöktun, linux, afritun og flóknum netkerfum.

CCNP vottuð með sérstaka áherslu á umhverfi netþjónustuaðila og mikilvæga innviði.

Þekkt fyrir einstaklega breiða tæknilega þekkingu, vandað vinnulag, nákvæmni og að einfalda flókin verkefni.

Hafa samband

Byrjum á 30 mínútna samtali

Heyrðu í okkur með því að hafa samband í síma 546-9700 eða með því að senda á photon@photon.is og við tökum spjall um þínar þarfir og væntingar.

Einnig er hægt að hafa beint samband við

Dæmi um spurningar sem þú getur sent

  • „Við erum með vandamál, getið þið aðstoðað okkur?"
  • „Getið þið farið yfir núverandi umhverfi og bent á betrumbætur?“
  • „Við viljum styrkja öryggi og gæði innviða, hvað er skynsamlegt fyrsta skref?“
  • „Við erum að undirbúa breytingar eða flutning, getið þið farið yfir áætlunina með okkur?“

Við reynum að svara innan eins virks dags. Ef við erum ekki rétti aðilinn fyrir verkefnið þitt munum við aðstoða með að koma málinu á réttan farveg.